29nóvember

Annarlok

Já, ég ákvað að taka mér smá pásu frá lærdómnum til að blogga örlítið.
Ég er búin að vera á fullu við að klára öll verkefni þar sem að önninni er að ljúka. Ég held að ég sé búin eitthvað rétt um 10. des og vonast til að komast heim stuttu eftir það.

Hluti af þeim verkefnum sem ég er að klára er heimasíða, og ég er búin að vera að laga til helling af ljósmyndum og ætla að setja þær þar inn, þannig að bráðlega ætti að koma linkur hérna inn með alveg fullt af myndum.
Ætla líka að reyna að drífa í því að setja inn myndirnar af fína matnum okkar heima, við Bósi og VÖ vorum rosalega frökk og keyptum okkur purusteik, ég steikti það og bjó til sósu og bakaðar karteflur og alveg hreint heila klabbið, var rosalega stolt af því að hafa náð að elda almennilega steik og gera borðanlega sósu og heimtaði að Valdemar tæki myndir af öllu til að sanna fyrir það að við erum sko dugleg!

Ég er heima hjá Bósa núna, það er pabbahelgi hjá honum og það kom mér skemmtilega á óvart þegar að pabbi hans setti Fram í heiðanna ró, á. Minnir mig alltaf á sveitina og fjölskylduna og get ekki sagt að það sé eitthvað slæmt að láta minna sig á það af og til.
Var að velta því fyrir mér hvort að það séu ekki til einhverjir diskar með öllum þessum lögum eftir afa og langafa? Langar allavegana rosalega mikið til að eignast textana, spurning hvort að ég fari bara til afa og fái barasta nótur með ef að það er hægt.


En ojæja, nóg í bili, aftur í lærdóminn.  Þið heyrið án efa frá mér bráðlega =)
29. nóvember 2008 klukkan 12:24
Aldís Dagmar
5 athugasemdir
23nóvember

Styttist í jólin

Já það er farið að styttast í jólin, og mér líður eins og að jólin í fyrra hafi verið fyrir svo stuttu.
Ég myndi vera að ljúga ef að ég segðist vera hress, enda búin að liggja í nokkra daga með þvílíku ælupestina og er ekki sérlega hress með það.

Eins og að ég hafi ekki nóg að gera fyrir.... pfft.

Nú ég er aðallega búin að liggja uppí rúmi og horfa á jólamynd á eftir jólamynd.
Christmas with the kranks, elf, christmas vacation, home alone, ég gæti haldið áfram.

Það er erfitt að forðast jólaskapið í auglýsingaflóðinu sem er að skella á, jólaskreytingarnar í búðunum og svo ég tali nú ekki um það að finna sætu piparkökulyktina af skakka piparkökuhúsinu mínu á hverjum degi.
Ég verð að reyna að fara að koma mér í það að setja myndir hérna inn.
Það á eftir að setja inn myndir af íbúðinni, piparkökuhúsinu, hrekkjavökunni og sov ég minnist nú ekki á það að ég fann loksins myndirnar af jólunum hjá ömmu og afa síðan í fyrra!

Við erum heima hjá Bósa núna, mamma hans bauð okkur í almennilegan sunnudagsmat og ekki getum við neitað svoleiðis boði. Þau eru hérna á fullu við að taka upp jóladót og seríur og standa núna í því að snúa stofunni hjá sér alveg hreint við, það vantar ekki uppá jólafílinginn hérna í breiðholtinu hjá þeim, og mér fannst einstaklega gaman að sjá að Bósi á nákvæmnlega eins spiladós og ég.
Gamla spiladósin sem að ég er búin að eiga síðan að ég man eftir mér og þykir vænna um en orð geta fengið lýst, ég hafði aldrei séð aðra svona fyrr en ég kynntist honum, mér finnst það pínu fyndið.

Nú ég get ekki beðið eftir því að komast heim í jólafríinu, en veit samt ekkert hvenær það verður.
Mér finnst upplýsingaflæðið í Tækniskólanum vera fáránlegt og til skammar, mér finnst það allt saman vera ótrúlega flókið og að þurfa að bjarga sér alveg sjálfur er eins og að reyna að læra kínversku á eigin spítur....

Nú ég hef ekki mikið meira að segja í bili, bara svona aðeins að láta heyra í mér. Er forvitin að fá að vita hvenær að Ádda kemur til landsins? Ætlið þið ekki að vera hjá okkur um jólin?
23. nóvember 2008 klukkan 18:24
Aldís Dagmar
Almennt
4 athugasemdir
08nóvember

All I want for cristmas....

Is my two front teeth
My two front teeth
and my two front teeth
All I want for christmas is my two front teeth
So I can wish ya merry chriiistmaaas

Jájájá, ég hef verið löt við að blogga og löt við að hafa samband við hina og þessa og það er bara eins og gengur og gerist og mér þykir það leitt, en það er víst ekkert sem að maður getur í því gert.
Nú hefur fólk verið sæmilega duglegt við að spyrja mig hvað ég vil í jólagjöf svoleiðis að ég ákvað að taka bara til almennilegan jóla-óskalista svona eins og litlu krakkarnir gera, og þið getið bara latið ykkur það duga =P

Elsku Ádda frænka. Ég hef íhugað það sem að þú sagðir um að koma og vera hjá okkur um jólin, og eftir miklar vangaveltur um þetta þá hef ég ákveðið að leyfa ykkur að koma og vera með því skilyrði að ég fái tvo pakka af duplo nammi þegar þið komið =P ha-ha-ha
Nei annars er ég nú alveg rosalega spennt fyrir því að fá ykkur, held að það verði bara svakalega gaman.

En jæja, hérna er smá óskalisti.


• Sparistell  (Ikea selur rosalega fallegt hvítt stell með gylltri rönd á því, hægt að sjá í jólabæklingnum þeirra)
• Tunnel lokkar (Tunnelið mitt er 10mm, þannig að það þarf að biðja um 10mm lokk, en annars er þetta bara nákvæmnlega eins og að velja venjulega eyrnalokka stelpur mínar)
• Inniskó
• Little black dress bækur (fást í flestum bókabúðum)
• Sandman (Sandman eru bækur, þær fást í Nexus, ég á enga)
• Neil Gaiman (er uppáhalds rithöfundurinn minn, fæst í öllum verslunum, gott úrval í nexus samt)
• Sokkabuxur
• Belti (Á ekkert flott belti, langar rosalega í eitthvað svona stórt og groddaralegt belti)
• Rúmföt x2 (já, ég sef með tvær sængur í rúminu og er rosalega picky á það að hafa allt í allavegana sama litaþema)
• krullujárn

DVD

• Just my luck
• Confessions of a teenage drama queen
• Mean Girls
• No body is perfect
• Lucky Star season 1
• Sex and the city
• The L word season 1
• Pushing daisies

Wii tölvuleikir

• Monster Jam
• Worms
• De blob

 

Já þetta ætti að gefa fólki einhverjar hugmyndir allavegana.
Á morgun ætla ég að reyna að setja loksins inn einhverjar myndir hérna, þannig að ég persónulega vonast allavegana til að geta hent inn alveg slatta af myndum, endilega kíkið á það svo.

08. nóvember 2008 klukkan 19:47
Aldís Dagmar
Almennt
5 athugasemdir
23október

Reykjavík í slabbinu... nei ég meina snjónum..

Snjókoma, eirðarleysi og jólaskraut....... Nánar
23. október 2008 klukkan 14:30
Aldís Dagmar
5 athugasemdir
02október

Smá blogg...

Já það er búið að vera nóg að gera hjá mér og ekki búin að hafa mikinn tíma til að blogga.
Í þokkabót þegar að ég loksins fann tímann og ætlaði að vera dugleg og setja inn myndi af íbúðinni þá lokar Vodafone á netið hjá okkur svo við vorum netlaus í smá tíma. Myndirnar koma þá vonandi inn eftir helgi þar sem ég er í fartölvunni núna og ekki með myndirnar, og stelpurnar ætla að koma um helgina, WOOHOOO!!

Hamingjuóskir til Möggu systur Ásdísar sem að átti lítinn strák í gærmorgun, og Ásdís er strax að flýja í heimsókn til mín,heheh.
Hlakka til að geta sest og spjallað almennilega um helgina.

Nú ég vonast til að geta farið að framkalla í næstu viku, sem þýðir að vonandi get ég farið að henda eitthvað af myndum hérna inná líka. Svo langar mig rosalega til að fara að fá saumavélina en ætla nú að leyfa mömmu að klára það sem hún þarf að gera með hana fyrst.

En ojæja ég hef nú ekki mikið að segja í bili, ætla að reyna að setja inn myndi af íbúðinni og nýja kjólnum og pelsnum eftir helgi.
02. október 2008 klukkan 18:34
Aldís Dagmar
5 athugasemdir
20september

Sjúkrasögur

Flestar ferðir mínar á sjúkrahús og læknastofur landsins í gegnum árin hafa verið heldur fáránlegar.

Sama hvort að það sé brotna táin eftir stálhæla stelpuna í skrúðgöngunni.
Brotni puttinn eftir að hafa misheppnast við að grípa körfubolta í fyrsta íþróttatíma annarinnar, og ofnæmið sem að fylgdi umbúðunum eftirá.
Svo við nefnum ekki bjórskvettu atvikið mitt hrikalega, þar sem ég tví-tábrotnaði og haltraði heillengi eftirá eða þegar hið óhugsanlega gerðist og ég datt af hornsófanum í Ásabyggðinni og braut eyrað.

Eyrað sem að á ekki að vera hægt að brjóta.

En engin sjúkrahúsaferð er jafn hrikalega niðurlægjandi og sú nýlegasta.
Þegar ég mætti fárveik inná slysó á Akureyri klukkan 2 á laugardagsnótt.

Í heila viku var ég búin að liggja með hita, hálsbólgu og rosalegt kvef, sem að leiddi út í sterkan verk í eyrunum á mér. Í nokkra daga gat ég varla sofið vegna verkja, mamma og pabbi voru fyrir sunnan að ganga frá málum á Snorrabrautinni og Valdemar var að vinna langar vaktir á Olís.
Á þessu laugardagskvöldi var ég farin að finna svo rosalega til í eyrunum að ég hef aldrei upplifað annað eins og ákvað að keyra sjálfa mig uppá slysó.

Þarna gekk ég inn, hágrátandi, eldrauð og bólgin í framan með sokkin augu og úfið hár, konan í afgreiðslunni horfði á mig með stór spurningarmerki í augunum sem að gerðu ekkert nema stækka þegar að ég loksins náði að borðinu og reyndi að tauta útúr mér „má ég fá svefnlyf?“.
Þar sem ég var frekar hás og talaði furðulega fyrir, þá drukknuðu þessi orð algjörlega í ekkasogum  og væli. Grey konan skildi ekkert hvað ég var að segja og sagði mér að bíða bara eftir lækni.
Læknirinn myndi örugglega skilja mig betur......

Nú þegar að ég sit á biðstofum, finnst mér allir vera að horfa á mig.
En í þessu tilviki, þarna á slysó í Ágúst.
Þá voru allir að horfa á mig.

Á móti mér sat strákur, líklegast svona um 10 ára, hann var illa fótbrotinn, allur bólginn og hálf fjólublár, sat bara þarna og beið eftir lækninum með pabba sínum og systur, kveinkaði sér ekkert, sat bara og horfði á mig.

Horfði á 17 ára stelpuna sem sat með tárin í augunum því að hún var með kvef....
Sannleikurinn er sár stundum

Nokkru seinna eftir þessa fáránlegu ferð mína á sjúkrahúsið komst ég að því að læknirinn minn þessa nótt var víst ættuð úr Baldursheim. Furðulega lítill heimur, og ég vona innilega að hún muni ekki skýrlega eftir öllum sjúklingum sínum.

Nú eftir þessa reynslu mína af brotnum puttum og tám, tognun eftir að hafa tekið glæsilegt fall á nýbónuðu gólfi og fleira lítilræði, hef ég áttað mig á því að kvef, er bara ekkert til þess að gera grín af!

 

-          Frá hinni mjög svo kvefuðu Aldísi D

20. september 2008 klukkan 13:22
Aldís Dagmar
7 athugasemdir
17september

Hiti & Hausverkur

Já það er miðvikiudagur og Vanalegast eru miðvikudagar langir dagar hjá mér
Skrautskrift, stærðfræði og fjölmiðlafræði.

Ég var nú samt heima í dag
Heima með hita og dúndrandi hausverk og stórt samviskubit yfir því að vera ekki enn búin að klæða mig.

Ég er bara búin að sitja með ferðatölvuna í fanginu og reyna að læra sjálf heima. Aðallega leið fyrir hönd Valdemars þar sem honum var lofað góðri máltíð í kvöld, við erum ekki búin að vera að borða alveg nógu mikið seinustu daga, enda brjálað að gera hjá okkur báðum.
Hinsvegar bauð Þórdís okkur í frábæran fisk í gær, það var frábært, sátum svo öll og s pjölluðum heillengi eftirá og Valdemar hjálpaði henni með stærðfræði. Fiskurinn var frábær og þetta var æðislegt kvöld.
Eftirá ákvað ég að gista uppí breiðholti, ótrúlegt en satt á ég oft auðveldara með að vakna á morgnana þar, ekki það að ég eigi erfitt með að vakna heima, ég held að það sé bara þessi pæling að heima er ég í 5 mínútna gangi frá skólanum og get kúrt í rúminu lengur, en uppí breiðholti þarf ég að vakna fyrr og neita mér um snooze takkann á vekjaraklukkunni til að Bósi sé ekki alltaf að vakna líka.  Svoleiðis að það hefur verið að ganga vel þegar ég hef gert þetta.

Ég viil þakka öllum frábærum frænkum fyrir boð í mat, við eigum örugglega eftir að taka ykkur á orðinu einhverntíman.
Planið eins og það er núna er allavegana það að baka heilan helling af skinkuhornum og fara í heimsókn til ömmu Dúu um helgina. Ég dauðskammast mín fyrir þessa leti í mér við að fara í heimsóknir.
Ein einhvernveginn hef ég það á tilfiningunni að þetta sé eitthvað sem að allir lenda í, að ætla sér að gera hitt og þetta, fara hingað o g þangað og hitta hina og þessa en koma því aldrei í verk.

Kemur á endanum.


- Hálf slappa, Aldís D
17. september 2008 klukkan 18:17
Aldís Dagmar
3 athugasemdir
14september

Latir Sunnudagar


Við erum að renna inní sunnudagskvöld núna og helgin fer bráðum að verða búin
Enn eitt sunnudagskvöldið þakka ég fyrir það að þurfa ekki að vakna fyrr en hálf 11 á mánudögum

Helgin var fín, eyddi meirihluta helgarinnar í breiðholtinu,  foreldrar Bósa fóru austur til systur hans í réttir, tóku Patta kút með sér svo við Bósi tókum því bara rólega tvö heima. Elduðum rosalega góðan kjúkling og Valdemar kom og borðaði með okkur.
Kryddlegnir kjúklingaleggir á 500kr í Bónus - Hell já

Á Laugardaginn fórum við í kolaportið að leita að nágranakonu Bósa, hún er alltaf með alveg klikkuð föt og rosalegt úrval af skóm, hún var búin að taka frá loðfeld handa mér seinustu helgi sem að Bósi keypti handa mér.
Kostaði bara 6000 krónur, ekta feldur í frábæru standi ásamt því að ég hef aldrei fundið feld sem að fer mér jafn vel o g þessi.
Reyni að henda inn mynd af honum sem fyrst. Ég er rosalega ánægð með hann, hann er rosalega hlýr og mjúkur.
Ég sé hann alveg fyrir mér passa frábærlega við svarta flauelskjólinn minn, sem verður frábært á köldum áramótum heima á Akureyri þar sem að snjóar frekar en rignir.

Endilega kíkið í myndasafnið, setti inn nokkrar myndir af því sem ég er búin að vera að gera í áfanganum VMM103, sem er vefsíðugerð, myndvinnsla og myndbandagerð.


Þá er komið nóg af bloggi í bili
- Aldís D, sem að hlakkar til fyrsta snjó vetursins... hvenær sem það verður

14. september 2008 klukkan 19:17
Aldís Dagmar
6 athugasemdir
11september

Umferðaborgin Reykjavík

Um-Ferða-Borg-(in) Reykjavík

Á 70 á Sæbrautinni, 10 km yfir hámarkshraða vitanlega
Einfaldlega til þess að forðast það að stappan af illa förnum vinnubílum og trukkum keyri á mig
Horfði fram á helvíti í alveg dágóðan tíma þar sem að á akreininni við hliðina á mér var það sem að virtist vera óendanleg röð vörubíla sem að ótrúlegt en satt brunuðu framúr mér á 80-90 km hraða, en samt gerði röðin ekkert nema lengjast.

Almennur hámarkshraði fyrir vörubíla á þjóðvegum er 80
Hann breytist ekki á Sæbrautinni


Annars var svosem ágætt að eyða þessum tíma sem að fór í að sitja í gegnum sirka 15 ljósabreytingar
Veðrið var einstaklega fallegt, loksins eftir langan og leiðinlegan rigningarkafla á spítti kom sól og gott veður.
Eins og að Reykjavík er fáránlega ljót í rigningunni getur hún verið furðulegega heillandi í sólinni.
Kannski er það bara gleðin í manni sjálfum yfir rigningarleysinu. 
Wohoo!




Ich Snakke Dansk om Söndager....
Bíddu... er það ekki?
11. september 2008 klukkan 18:27
Aldís Dagmar
1 athugasemd
10september

Í Rigningunni


Já fólk, það er rétt sem að fólk segir
Það virkilega RIGNIR í Reykjavík

Ætla að hafa það stutt núna
Nýjar Fullyrðingar (merkið við (S) (Ó) )
- Ég ætla að vera dugleg við að blogga
- Þið ætlið að vera dugleg við að kommenta
- Ég ætla að vera dugleg við að hringja í fólk
- Þið ætlið að vera dugleg við að spjalla
-Ég sakna fólksins fyrir norðan
- Það er bara eins gott að þið saknið mín líka -
- Ég rokka í Guitar Heroe
- Þið ætlið að vera super nice því ég er lonly
10. september 2008 klukkan 17:54
Aldís Dagmar
2 athugasemdir

DDagmar

Lífið mitt í Reykjavíkinni

Auglýsing

Aðrir Hlutir

Innskráningar kubbur